Sími 892 3567 · Senda tölvupóst
Staðsetning
Mosgerði 3 · 108 Reykjavík
Skoða staðsetningu á korti
Afgreiðslutími
Mánudagar til miðvikudagar kl. 14:00 - 18:00
og á öðrum tímum samkvæmt samkomulagi.
Forsíða Vörur Varahlutir / Aukahlutir Upplýsingar Þjónusta Afgreiðslutími
 Nýjar saumavélar
 Notaðar saumavélar
Afgreiðslutími
Mánudagar til miðvikudagar
kl. 14:00 - 18:00.

Erum einnig til þjónustu reiðubúin aðra virka daga á þessum tíma, á kvöldin og um helgar, eftir samkomulagi.

Hafðu samband í síma 892 3567.
Þjónusta
Viðgerðaþjónustan sinnir viðhaldi og viðgerðum á öllum tegundum heimilissaumavéla. Lesa meira ...
Yfirflytjari
Við eigum yfirflytjara á flestar gerðir Toyota saumavéla. Auðvelt að setja á vélina og taka af aftur.
Skoða aukahlutalista
Þjónusta

Þjónusta Viðgerðaþjónustunnar og tilhögun hennar
Viðgerðaþjónustan er einkafyrirtæki og þjónustan er rekin á einkaheimili. Það gerir öll viðskipti persónulegri sem er einmitt það sem við viljum. Þegar þig vantar aðstoð getur þú leitað til okkar og við leysum vandann á eins stuttum tíma og mögulegt er.

Við önnumst viðgerðir á flestum tegundum saumavéla. Við veitum ráðgjöf við val á saumavélum og kappkostum að bjóða upp á margar gerðir og útfærslur af vélum til að uppfylla kröfur sem flestra. Við búum yfir áratuga reynslu af notkun á og þjónustu við heimilissaumavélar og leggjum okkur fram við að miðla þér af reynslu okkar.

Við tökum notaðar saumavélar af öllum tegundum upp í nýjar vélar. Við seljum notaðar saumavélar af öllum tegundum. Allar notaðar vélar eru ástandsskoðaðar, prófaðar, smurðar og verðmetnar af fagmanni fyrir sölu.

Afgreiðslutími okkar er ekki hefðbundinn. Hann markast af því að við erum í vinnu annarsstaðar frá morgni og fram eftir degi, en sinnum þjónustunni og sölunni á verkstæði okkar eftir klukkan 14:00 á daginn. Fastur afgreiðslutími okkar er á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum kl. 14:00 - 18:00. Aðra virka daga erum við oft við á þessum tíma, en hringdu samt á undan þér. Á kvöldin og um helgar erum við til þjónustu reiðubúin fyrir þá sem þurfa á því að halda, t.d. landsbyggðarfólk í borgarferð.

Við bjóðum upp á að sækja og senda vélar sem þarfnast viðgerðar gegn gjaldi sem ræðst af vegalengd frá verkstæði okkar. Sú þjónusta er þó bundin við Reykjavíkursvæðið en þeim sem búa utan þess bendum við á þjónustu Íslandspósts sem við höfum valið að nota.

Sími hjá okkur er 892 3567. Jafnframt bendum við á netfang okkar saumavelar@saumavelar.is varðandi fyrirspurnir og skilaboð.

Viðgerðaþjónustan
Mosgerði 3, 108 Reykjavík - Skoða staðsetningu á korti
Kt. 580778-0389
Sími 892 3567
Netfang saumavelar@saumavelar.is
Veffang www.saumavelar.is

  Uppgefin verð eru með 24% virðisaukaskatti, miðast við staðgreiðslu og geta breyst án fyrirvara.
  Allar upplýsingar eru birtar án skuldbindinga, án ábyrgðarskyldu og með fyrirvara um villur.

  © Viðgerðaþjónustan · Mosgerði 3 · 108 Reykjavík · Sími 892 3567 · saumavelar@saumavelar.is